8.3.2010 10:00:52 15 einstaklingar skiluðu inn fullnægjandi framboðsgögnum Fréttatilkynning frá stjórn Sjálfstæðisfélags Sandgerðis
Skilafrestur á prófkjörsgögnum fyrir prófkjör D-lista Sjálfstæðisfélags Sandgerðis og óháðra bæjarbúa fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar rann út laugardaginn 6. mars síðastliðinn. 15 einstaklingar skiluðu inn fullnægjandi framboðsgögnum og teljast því þátttakendur í prófkjöri Sjálfstæðisfélagsins og óháðra bæjarbúa sem fram fer laugardaginn 20. mars næstkomandi.
Frambjóðendur eru eftirtaldir, í stafrófsröð:
Árni B. Sigurpálsson, Norðurgötu 21
Davíð Ibsen, Lækjamótum 91
Elín Björg Gissurardóttir, Breiðhól 11
Gróa Axelsdóttir, Miðtúni 3
Haukur Andreasson, Holtsgötu 25
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Miðtúni 19
Ingþór Karlsson, Ásabraut 2
Magnús S. Magnússon, Hólagötu 15
Margrét Bjarnadóttir, Bogabraut 8
Ottó Þormar, Holtsgötu 38
Reynir Sveinsson, Bjarmalandi 5
Sigurður Valur Ásbjarnarson, Miðnestorgi 3
Sigurpáll Árnason, Suðurgötu 14
Tómas J. Knútsson, Hlíðargötu 42
Tyrfingur Andrésson, Sjónarhól 12
Fyrir hönd stjórnar Sjálfstæðisfélags Sandgerðis, Árni B. Sigurpálsson, formaður